krota.app
Öll forritin
Eigið kerfi · ekki opið öðrum

Tímaskýrsla

Sérsniðið tímastjórnunarkerfi sem ég smíðaði fyrir sjálfan mig. Það gerir mér auðveldara að halda utan um vinnuna: ég skrái tímana jafnóðum, sé hvað er óreikningsfært og bý til reikning í Konto með einum smelli.

Mælaborð Tímaskýrslu: óreikningsfært, tímar mánaðarins og nýlegar færslur.

Tímar og færslur

Hver viðskiptavinur fær tímaskýrslu fyrir hvern mánuð. Ég skrái tíma, útlagðan kostnað og fjölda, með klukku sem telur á meðan ég vinn, og fylgiskjöl eins og kvittanir festast við færslurnar.

Tímaskýrsla mánaðarins með færslum og samtölu.

Beint í Konto

Kerfið er tengt bókhaldinu í Konto með API. Úr einni eða fleiri tímaskýrslum verða til drög að reikningi með réttum dagsetningum og virðisaukaskatti, og tímaskýrslan fylgir með sem PDF ásamt kvittunum.

Drögin eru aldrei send sjálfkrafa. Ég fer yfir þau í Konto áður en þau fara út.

Gluggi til að stofna drög að reikningi í Konto.

Yfirlit yfir árið

Reikningsfært, greitt og ógreitt eftir mánuðum, án VSK, svo ég sé strax hvað er útistandandi.

Mánaðaryfirlit: reikningsfært, greitt og ógreitt.

Í símanum

Sama kerfi í símanum, svo ég get skráð tíma hvar sem ég er.

Tímaskýrsla í síma.

Kerfið er bara fyrir mig og því ekki opið öðrum. Viðskiptavinir og upphæðir á myndunum eru tilbúin dæmi.