Veðrið heima
Veðurskjár fjölskyldunnar. Hann hangir á vegg heima á gömlum iPad og svarar spurningunum sem skipta máli á morgnana: er gott að hjóla í vinnuna, þarf húfu og vettlinga í skólann og hvenær fer strætó?

Ferðir dagsins
Hjólaferðin í vinnuna og leiðin í skólann fá hvor sitt spjald. Hiti, vindur og úrkoma á þeim tíma sem lagt er af stað, einkunn frá Gott til Varasamt og ráð eins og húfa og vettlingar, nagladekk eða endurskinsmerki.
Strætó sýnir næstu vagna í rauntíma og hvenær þarf að leggja af stað til að ná í tíma.

Tvær spár, hlið við hlið
Spár Veðurstofu Íslands og yr (MET Noregi) eru sýndar saman, svo það sést strax þegar þær eru ósammála. Hiti, vindur og úrkoma næsta sólarhringinn, og ferðatímarnir merktir inn á.


Birtan
Sólarupprás, sólsetur og ljósaskipti, og hve mikið dagurinn styttist eða lengist frá því í gær.

Í símanum líka
Sama síða í símanum, í ljósu eða dökku útliti eftir stillingu símans.


Næturstilling
Frá kl. 22 til 06:30 dofnar skjárinn og sýnir stóra klukku og veðrið núna. Ýtt á skjáinn til að sjá allt. Á afmælisdögum fjölskyldunnar birtist kveðja og skemmtileg staðreynd um daginn.

Lítill vefþjónn á heimatölvunni sækir gögn frá Veðurstofu Íslands, yr og Strætó, og skjárinn uppfærir sig sjálfur. Hann er aðeins aðgengilegur heima, svo hér eru myndir í staðinn. Staðanöfnum er sleppt á myndunum.