Midorio
Forrit sem ég er að smíða til að sjá hvað er í vörunum sem við notum og borðum. Ég skanna strikamerkið eða tek mynd af umbúðunum og fæ einkunn frá 0 til 10: því lægri, því betri.

Skanna eða leita
Strikamerki eru lesin með myndavélinni. Midorio leitar fyrst í eigin gagnagrunni, svo í Open Food Facts og í vöruúrvali Krónunnar, og les innihaldslýsinguna af mynd ef varan finnst hvergi.
Það er líka hægt að leita að vöru eftir nafni, til dæmis beint í Krónunni með verði.


Hvert innihaldsefni metið
Hvert innihaldsefni fær mat með stuttri skýringu og einkunnin er reiknuð út frá því. Í matvöru telja líka sykur, salt, mettuð fita og hversu mikið unnin varan er.
Matið byggir á óháðum rannsóknum, ekki á heimildum frá framleiðendum eða hagsmunasamtökum.


Bera saman
Tvær til sex vörur hlið við hlið, raðað eftir einkunn, með því sem skilur á milli og hver er besti kosturinn.

Það sem ég vil forðast
Hver og einn velur hvað á að vara við, til dæmis gervisætuefni. Það er merkt á hverri vöru sem inniheldur það, hver sem einkunnin er, líka þegar innihaldslýsingin er á íslensku.


Midorio er í þróun og bara opið fjölskyldunni. Forritið er á ensku. Vörurnar á myndunum eru raunverulegar vörur úr Krónunni en aðgangurinn er tilbúinn. Einkunnirnar eru óopinbert mat, ekki læknisráð.